Hálfsagðar fréttir af "kraftaverki"

Jújú æðislegt að fá almennilega "kraftaverka"sögu einu sinni og einu sinni en manni finnst hálf asnalegt að segja ekki rétt og satt frá.

Þarna er sagt að keisaraskurður hafi verið framkvæmdur "án deyfingar" en manneskjan fékk epidural (mænurótardeyfingu) sem nota bene gæti verið ástæðan fyrir hjartastoppinu! Hvernig væri að koma með alla fréttina og reyna að hafa stærstu partana rétta, er það til of mikils mælst?


mbl.is Kraftaverk á jólum: móðir og barn lifnuðu við
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Arnórsson

...kraftaverk er miklu skemmtilegra..Gott nýtt ár!

Óskar Arnórsson, 31.12.2009 kl. 16:08

2 identicon

Það stendur nú í greininni: "Læknar segjast enn ekki vita hvað olli því að Tracey fór í hjartastopp né hvað varð til þess að hún lifnaði aftur við." svo mér sýnist nú ekkert vanta í fréttina... nema fréttamaðurinn eigi að útskýra eitthvað sem læknarnir geta ekki?

Raggi (IP-tala skráð) 1.1.2010 kl. 01:48

3 Smámynd: Óskar Arnórsson

Ef einh ver hoppar í gang sem er dauður í heiminum, er það frétt? Um hvað er þetta mál eiginlega?

Óskar Arnórsson, 1.1.2010 kl. 03:34

4 identicon

Voðalega eruð þið eitthvað neikvæð...

Auðvitað er það frétt að manneskja sem er dáin lifnar við aftur. 

Jafnvel þó epidural geti valdið hjartastoppinu (ég veit reyndar ekkert um það) þá þýðir það ekki að það sé ekki kraftaverk að manneskjan lifni við aftur.

hmm (IP-tala skráð) 1.1.2010 kl. 14:15

5 Smámynd: Óskar Arnórsson

Það fá svo margir hjartastopp á hverjum degi t.d. í Stokkhólmi þar sem ég bý á hverjum einasta degi, að venjulegir leigubílar eru með tæki til að starta fólki. Það er hver sekunta dýrmæt. Þeeir sem hafa unnið með hjartastopp geta sagt ykkur óteljandi svona sögur. Og það er ekkert sem bendir á nein kraftavert í þeim tilfellum.

Þess vegna er þetta ekki frétt. Eins og svo margt annað í fjölmiðlum. 

Óskar Arnórsson, 1.1.2010 kl. 14:24

6 Smámynd: Egill

var það þá líka kraftaverk að hún dó, fyrst læknarnir gátu ekki sagt hvað olli hjartastoppinu?

Egill, 1.1.2010 kl. 22:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband